top of page
Screenshot 2025-04-15 at 11.04.11.png
JÓGAGLEÐIFERÐ TIL TENERIFE

29. október - 6. nóvember 2025   8 DAGAR

Screenshot 2025-04-15 at 11.04.37.png

Endurnærandi ferð til Tenerife með áherslu á jóga, slökun og gleði.

Mæðgurnar Edda Björgvins og Margrét Ýrr jógakennarar sjá um gleðina og hreyfinguna í þessari ferð.

Gist er á 5 stjörnu hóteli við Fanabe ströndina á Adeje svæðinu á Tenerife. Hótel eingöngu ætlað fullorðnum.

 

VERÐ KR. 369.500, - á mann miðað við 2 í herbergi, morgunverður og kvöldverður innifalinn.

Jóga - göngur - gleði - fræðsla

 

Við bjóðum öllum mæðgum, systrum, vinkonum og glöðum konum að koma með í viku ferð til Tenerife í október.

Það eru mæðgurnar Edda Björgvinsdóttir og Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir sem sjá um göngur, gleði og jóga.

Edda Björgvinsdóttir leikkona er flestum Íslendingum kunnug.  Hún hefur undanfarin ár verið fastráðin við Þjóðleikhúsið. Áður en hún útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands nam hún heimspeki við HÍ. Hún er með MA í Menningarstjórnun og með diplóma á MA stigi í Jákvæðri Sálfræði og Sálgæslu frá Háskóla Íslands. Hún hefur meðfram leiklistinni farið í fjölmargar kvennaferðir um alla Evrópu og að auki haldið fyrirlestra og námskeið í velflestum stórfyrirtækjum landsins. Þar hefur verið boðið upp á ýmis konar þjálfun svo sem tjáning, styrkleikaþjálfun, húmor og gleði, heilsuefling, hamingjuþjálfun, sjálfsstyrking og margt fleira.

Edda hefur nýverið lokið námi sem jógakennari frá Jógasetrinu.

Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir er hjúkrunarfræðingur með MS gráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og diplóma í sálgæslu. Hún er einnig menntaður jógakennari eftir 200 tíma nám hjá Auði Bjarnadóttir í Jógasetrinu og jóganidra kennari frá Kamini Desai. Margrét lauk námi í hugrænni endurforritun hjá Dáleiðsluskóla íslands 2024. Margrét starfar sem hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu og stuðningsaðili í Sigurhæðum á Selfossi með stuðningsviðtöl fyrir konur sem orðið hafa fyrir ofbeldi. Margrét hefur starfað í björgunarsveit í 30 ár og lokið fjölda námskeiða í tengslum við sálrænan stuðning og áfallahjálp og er í viðbragðshóp Rauðakrossins í sálrænum stuðningi. 

Göngur, hreyfing útivera og gleði eru sérstök áhugamál Margrétar"

Screenshot 2024-07-18 at 20.02.41.png
Margret.png

 Á hverjum degi stundum við jóga (stóla/strandjóga/jóga nidra) hugum að heilsunni, hamingjunni, hlæjum, göngum saman og blómstrum!         Fræðsla, hreyfing og slökun.

Hótelið sem gist verður á heitir Iberostar Selection Sabila, 5 stjörnu hótel við Fanabe ströndina.  Á hótelinu er heilsulind þar sem boðið er upp á sundlaugar, sauna og ýmsar meðferðir.  Einnig er líkamsræktaraðstaða á hótelinu.

Falleg og björt herbergi.  ​​​​​​​​​​​​​​

Screenshot 2025-04-15 at 11.04.05.png
Screenshot 2025-04-15 at 11.04.29.png
Screenshot 2025-04-15 at 11.02.30.png
Screenshot 2025-04-15 at 11.02.06.png
Screenshot 2025-04-15 at 11.02.54.png

VERÐ KR 369.500,-  Á MANN MIÐAÐ VIÐ TVO Í herbergi

Viðbótarkostnaður vegna eins manns herbergis kr 121.450

Innifalið í verði 

  • Flug með Play til og frá Tenerife​

    • 29 október Kef - Tenerife 09:10 - 14:50​

    • 6 nóvember Tenerife - Kef  15:50 - 21:35

  • 20kg farangursheimild​

  • Akstur milli hótels og flugvallar á komu- og brottfarardegi 

  • Gisting á 5 stjörnu Iberostar Selection Sabila við Fanabe ströndina á Adeje svæðinu.

  • Morgunverður og kvöldverður

  • Dagskrá sem innifelur, jóga (stóla/strandjóga/jóga nidra), slökun, fræðsla, göngur og slökun.

Staðfestingargjald kr 60.000 greiðist við bókun.

Blue Water

Hafðu samband

Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info(at)heillandiheimur.is

Hlökkum til að heyra frá þér.

  • Facebook
  • LinkedIn
  • Instagram

Heillandi Heimur

Víðiteigur 4A, 270 Mosfellsbær, Ísland

info[at]heillandiheimur.is

​Sími +354 822 3890

2024-004.jpg

©2021 Heillandi Heimur

bottom of page