GOLF Á ÍTALÍU
CHERVO GOLF HOTEL OG SPA RESORT
Á einum fegursta stað á Ítalíu, í nágrenni við Gardavatn, er Chervo Golf Hotel & Spa Resort sem er einstök paradís fyrir golfáhugafólk. Þrír 9 holu golfvellir, frábær æfingaraðstaða, sundlaugar og notaleg rúmgóð herbergi.
DAGSETNINGAR:
19 - 28 SEPTEMBER 2022
9 NÆTUR / 10 DAGAR
VERÐ
innifalið í verði er:
* 9 nátta gisting með morgunverði * Beint flug með Icelandair * Ein 23 kg taska, 10 kg handfarangur og golftaska * Akstur til og frá flugvelli í Milano Malpensa * 7 18 holu golfhringir * Aðgangur að æfingarsvæði með fríum golfboltum * Fararsstjórn * Aðgangur að líkamsræktarsal * Upphituð innisundlaug * Aðgangur að heilsulind hótelsins * WIFI nettenging.
CHERVÒ GOLF HOTEL & SPA RESORT SAN VIGILIO
Á einum fegursta stað á Ítalíu, í nágrenni við Gardavatn, er Chervo Golf Hotel Resort sem er einstök paradís fyrir golfáhugafólk, Chervo Golf Hotel Resort sem meðal annars var valið besta golfhótel á Ítalíu árið 2020 og er á lista yfir 20 bestu golf resort í heiminum.
Golfvöllurinn sem er 27 holu keppnisvöllur og síðan 9 holu æfingarvöllur ásamt glæsilegri æfingaraðstöðu. Á svæðinu er fjölbreytt úrval af afþreyingu í einkar fallegu umhverfi eins og tennisvöllur, inni og úti sundlaugar og heilsulind.
Chervo Golf Hotel Spa & Resort San Vigilio er byggt umhverfis klaustrið í San Vigilio sem er frá 12. öld. Herbergin eru fallega innréttuð í antík stíl sem samræmist vel umhverfinu. Öll herbergin eru loftkæld og í þeim má finna minibar, sjónvarp, ísskáp og frítt internet WI-FI. Herbergisþjónusta er í boði allan sólarhringinn.
Veitingastaðurinn á hótelinu er innréttaður í fallegum antík stíl með notalegu rómantísku ívafi. Þar eru framreiddir gómsætir réttir með fyrsta flokks hráefnum úr héraðinu og einnig alþjóðlegir réttir, þar á meðal úr fiskafurðum. Á vínlistanum er að finna mikið úrval af léttum vínum og vínum úr héraðinu.
Eftir langan dag er upplagt að láta dekra við sig á heilsulind hótelsins þar sem boðið er upp á gufubað, eimbað, saltgrotti, vítarium og notalega slökunaraðstöðu í fallegu umhverfi. Einnig er boðið upp á úrval meðferða eins og nudd, andlitsböð ofl.
Hvort sem um er að ræða byrjendur eða lengra komna kylfinga er hægt að njóta þess að spila á stóra vellinum sem er 27 holu keppnisvöllur og stuttur 9 holu völlur. Einnig er mjög góð æfingaraðstaða á svæðinu. Eftir að hafa notið dagsins við að spila golf geta gestir slappað af á glæsilegri verönd hótelsins sem státar af víðáttumiklu útsýni eða farið í göngutúr og notið náttúrufegurðarinnar sem svæðið hefur að geyma.
Chervo Hotel Spa & Resort hefur undandfarin ár hlotið fjöldann allan af viðurkenningum fyrir golfvöllinn, hótelið og klúbbhúsið.
Chervò Golf Hotel Spa & Resort San Vigilio Experience
FLUG MEÐ ICELANDAIR
Beint flug með Icelandair frá KEF til Milano þann 19. september 2022 kl. 08:20 lent í Milano kl. 14:35
Beint flug með Icelandair frá Milano til KEF þann 28. september 2022 kl. 15:35 lent í KEF kl. 17:50
Innifalið: Flug, flugvallaskattar, 1 innrituð taska allt að 23kg, 1 taska í handfarangri allt að 10kg, golfpoki og þjónustugjald.
SKILMÁLAR
-
Staðfestingargjald greiðist inn á reikning Heillandi Heims við skráningu.
-
Hafa skal í huga við skráningu í ferð að nafn farþega sé ritað eins og á vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega að svo sé.
-
Nánari um skilmálar Heillandi Heims er að finna í meðfylgjandi þræði SKILMÁLAR
AFBÓKUNARREGLUR
Staðfestingargjald og allar innborganir eru óndurkræfar eftir greiðslu.
Kreditkort – Reglur sem gilda um tryggingar sem fylgja kreditkortum
Ekki þarf að nota greiðslukort til greiðslu á hluta eða heild ferðar til þess að kortatrygging verði virk. Einungis þarf að gæta þess að vera með kortið með í ferð. Við viljum hins vegar benda ykkur á að hafa samband við tryggingafélagið þitt til að kanna hvað er innifalið í kortatryggingu þinni til að ganga úr skugga um að sú trygging dugi eða hvort þörf sé á að kaupa viðbótar ferðatryggingu hjá tryggingafélagi þínu.
Allar nánari upplýsingar um ferðina gefur Ragnheiður Eiríks Friðriksdóttir, Raggý, í síma 844-6544 eða Í tölvupósti raggy@heillandiheimur.is.
Hafðu samband
Hægt er að hafa samband við Heillandi Heim með því að senda tölvupóst á info@heillandiheimur.is eða með því að smella á hnappinn hér að neðan og fylla út formið.
Hlökkum til að heyra frá þér.